5/1/22
Nýr fídus
Noona Sjálfsafgreiðslukerfi
Mótakan þín er mikilvægur staður til að taka vel á móti viðskiptavinum. Þar fá viðskiptavinir tækifæri til þess að kynnast stofunni betur og mynda sér skoðun á fyrirtækinu. Þeir hafa kannski skoðað myndir frá þér á Noona, en mótakan er staðurinn sem setur tóninn fyrir því sem koma skal.
Óreiðufull móttaka með löngum biðröðum getur komið viðskiptavinum úr jafnvægi og við erum komin á 21. öldina, það nennir enginn að bíða í röð lengur.
Við erum spennt að kynna fyrir ykkur lausn sem að getur einfaldað skipulagið í móttökunni og stytt biðraðirnar: Noona sjálfsafgreiðslukerfið!
Appið er auðvelt og þægilegt fyrir bæði fyrirtæki og viðskiptavini. Hægt er að sækja það í iPad og Android spjaldtölvur og þannig geta viðskiptavinir skráð mætinguna sína og jafnvel borgað fyrir tímann fyrir fram.
Hér er það helsta sem að sjálfsafgreiðslukerfið býður upp á:
Viðskiptavinir skrá inn símanúmerið sitt og við sýnum þeim alla tímana sem þeir eiga þennan dag. Ef að fleiri en einn tími er bókaður geta þeir skráð sig inn í báða.
Þegar að viðskiptavinur hefur skráð sig inn fær bókunin „mættur” merkinguna á dagatalinu.
Hægt er að setja inn skilaboð sem að viðskiptavinurinn sér eftir að hafa skráð sig inn, til dæmis til að segja honum að bíða í biðstofunni.
Ef að þú vilt að greitt sé fyrir tímana fyrir fram mun appið tengjast við posa við hliðina á spjaldtölvunni. Þegar að viðskiptavinurinn skráir sig inn mun upphæðin fyrir þjónustuna birtast í posanum.
Við vonum að þið munið njóta þess að nýta ykkur Noona sjálfsafrgeiðslukerfið!
Hægt er að finna appið á iOS og Android app búðunum undir nafninu „Noona check-in”