2/9/23
Bæting
Breytt og bætt Noona HQ app fyrir símann
Við vitum að mörg ykkar eru aðallega að nota Noona HQ í símanum, hvort sem að það er iPhone, Android eða eitthvað allt annað!
Í fullri hreinskilni var Noona HQ ekki upprunalega hannað með síma í huga, en þetta hefur verið að breytast mikið að undanförnu. Núna hönnum við allar nýjar uppfærslur með símana efst í huga og við höfum verið að gefa okkur góðan tíma í að betrumbæta Noona HQ í símanum.
Þessi uppfærsla sýnir að þetta skiptir okkur máli! Í nýju símaútgáfunni af Noona HQ getur þú loksins gert allt það sem þú hefur hingað til þurft að gera á tölvunni, auk þess sem að appið er mun þægilegra í notkun.
Núna er hægt að:
Skoða söluskýrslur og reikninga á símanum
Setja upp, skoða og breyta netbeiðnastillingum á ferðinni
Skoða yfirlitið á símanum
Senda SMS herferðir úr símanum
… og fleira
Við vonum að þið séuð ánægt með þessa nýju uppfærslu og hlökkum til að bjóða upp á enn meiri þægindi í síma og spjaldtölvur.
Endilega hafið samband ef að þið hafið eitthverjar ábendingar eða athugasemdir varðandi nýju uppfærsluna ❤️
Nýlegar breytingar og lagfæringar
Dagatalið flettist ekki lengur undarlega þegar að verið er að skoða vikuna í dagatalinu
Ólíklegra er að tímar séu óvart færðir á vitlausan stað
Tilkynningar sendast ekki lengur út til viðskiptavina ef að afbókaðir tímar eru færðir
Núna á alltaf að vera auðvelt og þægilegt að búa til frítíma
… og margt fleira