10/16/24
Noona hlýtur viðurkenningu frá Maskínu
Í nýafstaðinni Meðmælingu Maskínu reyndist Noona fremst í flokki 12 vefþjónustuaðila. Var þetta annað árið í röð sem Noona mældist efst í þessum flokki.
Mælingin er veglegasta þjónustumælingin sem gerð er á íslenskum markaði og tók í ár til 193 fyrirtækja og eru verðlaun veitt í 13 atvinnugreinaflokkum.
Meðmæling Maskínu er þjónustukönnun þar sem stuðst er við NPS skor og fólk spurt hversu líklegt það sé til að mæla með þjónustu þeirra fyrirtækja sem það beinir viðskiptum sínum til. Tilgangur könnunarinnar er að vekja athygli á og hampa þeim fyrirtækjum sem veita almenningi frábæra þjónustu.
Aðrir aðilar í flokku vefþjónustu voru:
Noona ⭐
Aha
Alfreð
Bland.is
Dineout
Dohop
Heilsuvera
Hópkaup
Ísland.is
Meniga
Skatturinn (þjónustuvefur Ríkisskattstjóra)
Tix.is
Þetta er rosalegur heiður og viðurkenning, og drífur okkur til dáða.
Ekkert af þessu væri hægt án ykkar sem nota Noona HQ - saman lyftum við stéttinni upp!